mánudagur, 21. janúar 2008

Enjoy life. There's plenty of time be dead !


Yes-sir-í-Bob…. Ég hef enga hugmynd um hvað ég eigi að blogga.. hef í rauninni ekkert merkilegt að segja eins og vanalega. Nema þegar ég hef eitthvað merkilegt að segja þá er ég búin að segja öllum frá að ég þarf ekki einu sinni að blogga um það til að segja frá því aftur. :/
En í dag þá svaf ég næstum því yfir mig ef það hefði ekki verið fyrir Smirnoff’s en hann var stanslaust að hlaupa á bleika boxið þar sem ég geymi matinn hans og fleira hamstradót. Klæddi mig og allt það dót og gaf honum nammi fyrir að hafa vakið mig. Svo þegar ég kom heim þá var hann vakandi, sem er pínu skrýtið þar sem vanalega hefur hann verið sofandi á daginn og svo vakandi á kvöldinn.
Anyway.. nóg um hann…
Var í NOSF ( Nýsköpun og stofnun fyrirtækja) fyrirlestri í dag, var eitthvað verið að tala um hópavinnu og solleis stöff… svo var gestafyrirlestur í þessu líka og það var hann Andri Snær Magnason sá sem skrifaði Bláa hnöttinn, hann var skemmtilegur.
Svo á miðvikudaginn verður eitthvað sem kallast AIESEC, hef ekki hugmynd hvað það er ennþá en ætla að tékka á því og blogga örugglega eitthvað um það þegar ég hef aflað mér nóg af upplýsingum.
Ég held svo að ég sé komin með hugmynd um hvað BSc-ritgerðin mín eigi að fjalla um… :$
Svo er maður farinn að hugsa um hvað eigi að gera í sumar, en ég held að ég sé næstum því komin með plan.
Einnig er líka farið að hugsa hvernig maður eigi að halda upp á tvítugsafmælið, á ég að halda stóra veislu.. því maður verður nú bara einu sinni 20 ára… eða á maður að halda sig heima og tjilla, panta pizzu og horfa á mynd. Eða skella sér til útlanda og gera eitthvað af sér þar.

En já .. þetta er nóg í bili…

2 ummæli:

Dagmar Ýr sagði...

yay!!! blogg =D

en ég mundi halda geggjað stóra veislu fyrir tvítugs afmælið þitt =) og bjóða fullt fullt fullt af fólki =) þ.a.m. mér =Þ auðvitað

MIA sagði...

lol ^^