föstudagur, 15. ágúst 2008

ÉG GET ALLT ÉG Á AFMÆLI Í DAG !!!!!!!!!!!


woooohooooooooooo

Núna má ég allt
ég á afmæli í dag
ég nenni ekki neinu.
Ég get allt,
ég er tvítug í dag
ég nenni ekki neinu

fimmtudagur, 24. júlí 2008

föstudagur, 6. júní 2008

Plön, súludans og fiskar




Það er kominn meira en mánuður síðan ég bloggaði síðast :), ég held að það sé alveg nóg að blogga einu sinni á mánuði. Ég er ekki mikið fyrir að skilja komment á öðrum bloggum sem ég les því að ég hitti hvort sem er fólkið sem bloggar og mér finnst nóg að vera segja það face to face heldur en að vera skrifa eitthvað á blogginu þeirra og svo tala um bloggið þeirra þegar maður hittir þau :/

Sumir eru kannski ekki að fatta þetta alveg eða eru ekki sammála þessu but who cares.. not me...

Ég er byrjuð í sumarskóla og núna eru bara 2 vikur eftir af honum. Kennarinn er skemmtilegur og ég komst að því í gær að það er gaur sem var í Ædolinu og var kallaður 500-kallinn, er með mér í bekk. (NEI Björk ég ætla ekki að biðja hann um eiginhandaráritun !).

Dagmar átti afmæli 4. júní, orðin tvítug stelpan, til hamingju með daginn :)
Ég hlakka smá til þegar ég verð orðin 20 ára, en samt ekki :( hef ákveðið að halda ekki uppá afmælinu mínu, veit samt að mamma á eftir gera eitthvað. En ég ætla sjálf ekki að halda einhverja veislu og bjóða vinum og svoleiðis.

Þegar ég kom frá BGN og heim til RVK þá fattaði ég það þegar ég var að fara gefa fiskunum mínum mat að það voru bara 4 fiskar í búrinu. En það eiga að vera 6 fiskar (2 gubbý Steve & Greg, 4 neon fiskar Marvin, Leila, Luke og Finnbogi). Who stole my fishes? :/

Loksins náði ég að uppfylla langþráðan draum og það er að æfa súludans :)


Lenti svo um daginn þegar ég var að kíkja á myndir á Laugarásvideo að það labbar gaur upp að mér og byrjaði að reyna við mig. Svo þegar ég færði mig á næsta hillu þá var hann alltaf kominn á eftir mér. Meina þetta var ekki svo slæmt, en eftir smá tíma var mér farið að líða pínu óþægilega. Sérstaklega þegar hann bauð mér íbúðina sína svo að ég gæti horft á dvd myndir og hækkað í botn græjurnar og svoleiðis. :/ Svo var hann alltaf að tala um hvað við værum með sama bíómyndasmekkinn... að hann væri mjög mikið í grín og stríðsmyndum... ég fíla ekki stríðsmyndir....

Mér leiðist pínu og er einmanna og þegar það gerist þá.... (hehe ekki það sem þið pervertin eruð að hugsa um).. en ég fer að plana alltof mikið. Er komin með 5 ára plan !
Það er ekki gott, og núna þarf ég að gera annan 5 ára plan sem er miðað við hluti sem gætu gerst á þessum 5 árum.
Semsagt er basically komin með er að ég stefni á að útskrifast 2010. Ef Juno verður fluttur í bæinn og fasteignamarkaðurinn hefur lækkað þá vonandi kaupum við okkur íbúð. En á meðan mun ég sækja um í skólum í Bandaríkjunum og á Englandi þar sem ég stefni á framhaldsnám. Ef ég kemst inn þá flyt ég auðvitað. En mun samt hjálpa Juno með íbúðina, þ.e.a.s. ef við kaupum okkur en held samt að það gerist ekki. En þá er þetta miðað við að ég kynnist ekki einhverjum and get knocked up... úff... of mikið planning...

Me need knús :(

sunnudagur, 4. maí 2008

Bréf til mömmu !

Mamman gekk framhjá herbergi dóttur sinnar og varð nokkuð undrandi að sjá að það var búið að búa um rúmið og taka vel til í öllu herberginu. Hún sá að þa ðvar umslag á miðju rúminu og á því stóð: TIL MÖMMU. Mjög áhyggjuful opnaði hún umslagið og las skjálfhent bréfið sem í því var.

Elsku mamma.
Það hryggir mig nokkuð að þurfa að segja þér með bréfi þessu að ég er hlaupin að heiman. Ég geri þetta svona til að koma í veg fyrir að þið pabbi reiðist mér.
Ég hef verið að undanförnu fundið sterkar tilfinningar til Ahmeds og hann er svo yndislegur þrátt fyrir öll götin, húðflúrin, skeggið og mótorhjólagallana sína. En það er ekki bara það mamma mín að ég ber svona sterkar tilfinningar til hans því að ég er ólétt og Ahmed segir mér að hann sé svo glaður með það.
Hann er þegar búinn að kaupa hjólhýsi fyrir okkur að búa í og hann er búinn að safna helling af eldivið til að halda á okkur hita í allan vetur. Hann er búinn að segja mér að hann langi til að eignast með mér fullt af börum og ég er svo innilega sammála honum með það. Ahmed hefur kennt mér það að marijuana gerir engum illt í raun og veru og ætlar hann að rækta nóg af því fyrir okkur þannig að við munum eiga nóg af því afgangs til að skipta á því og kókaíni og E-töflum handa okkur báðum. En ég vona líka að vísidnamenn finni fljótlega lækningu á AIDS svo að Ahmed mínum batni, hann á það svo skilið !!!!
En ég bið þig að hafa ekki áhyggjur mamma mín því að ég er nú orðin 15 ára og kann alveg að sjá um mig sjálfa. Þar að auki er Ahmed orðinn þrítugur þannig að hann veit vel hvað hann er að gera. Einhvern daginn ætla ég svo að koma í heimsókn svo að þú getir hitt öll barnabörinin þín.
Þó dóttir Kristín.


PS: Mamma, ekkert að ofansögðu er satt. Ég er í heimsókn hjá Sigu í næsta húsi. Mig langaði bara að láta þig vita að það er margt verra í heiminum en einkunnapsjaldið mitt sem er í efstu skrifborðskóffunni. Ég elska þig. Láttu mig vita þegar það er óhætt fyrir mig að koma heim ;S

föstudagur, 28. mars 2008

"#$)""!"#¨

Allt frekar fucked upp hér á bæ... feginn að ég er með stað þar sem ég fæ að vera í friði.
En já í kvöld er ég og Juno búin að taka yfir barnum. Ætla að train-a hann í þetta starf.. einhver verður að gera það...
Foreldrar okkar eru ekki eins og þau voru áður... heilsulega séð...
Búist er við að nýja húsið verði tilbúið 10.apríl þá getum við loks flutt inn.
Fyrsta prófið hjá mér er núna 3ja eða 4. apríl. Svo 7. apríl og síðasta 19. apríl.
En er samt ekki búin fyrr en 10. maí í skólanum. :(
Er ekki komin með vinnu þannig séð, en verð samt í sumarskóla, held að ég verði að taka mér smá frí í sumar, spurning hvort maður skreppi ekki aðeins til UK.

og já gleðilega páska..

föstudagur, 29. febrúar 2008

Febrúar

Febrúar er að klárast, síðasti dagurinn er í dag hlaupársdagurinn 29.
Ég þarf að hitta mömmu og Juno á eftir og svo halda kynningu ásamt hópnum mínum. Það slæma við það allt saman er að ég vaknaði með bullandi hausverk og stíflað nef og ógeðslega hálsbólgu. Já ég er veik.... :(
Á laugardaginn þarf ég að vinna og á sunnudaginn þarf ég að hitta annan hóp í verkefnavinnu.
Svo þarf ég að fara undirbúa mig undir prófin sem eru að fara bresta á en fyrsta prófið mitt er 7 apríl og síðasta 19. apríl.
Hlakka til að komast í páskafrí en samt ekki því fríið er bara í 6 daga... en samt þetta er þó frí...eða þannig held að ég verði bara látin í að mála og læra...
En þennan febrúarmánuð þá fór ég í smá klippingu og lét setja eina rauða strípu. Klippingin var gegg töff í fyrstu en eftir á þá var hún ekki eins töff því að ég kann ekki að blása og greiða það eins og Nonni gerði.
Juno klessti bílinn minn á ljósastaur, þeir sluppu vel sem betur fer... og loksins var hringt í pabba og kallarnir ætla að taka bílinn inn 10. mars. vúhú !!!
Ég held að það séu flestir sem eru orðnir svo þreyttir á snjóinu og hálkunni og öllu vetrarthinginu... nema Kristín...
Í gær þegar ég var að chatta við Ásrúnu á msn þá komst ég að því merkilegu að flestir kk Akureyringar væru með BP. Good to know ;)

föstudagur, 8. febrúar 2008

"It's not how much you do, but how much love you put in the doing."

Vá, hvað tímanum líður skuggalega hratt. Alltof hratt.... perhaps...
Svo er búið að snjóa like I don't know what.... margir fastir hér og þar, árekstrar hér og þar líka og svo má lengi telja. Talandi um að vera fastur í þessum hel*ítis snjó þá í gær gerðu við Dagmar góðverk og hjálpuðum konu einni sem festist við að leggja í stæði. Málið var þannig að ég skutlaði Dagmar heim til sín og svo þegar ég ætlaði heim til mín þá er bíll fyrir mér á bílastæðinu þannig ég kemst ekki áfram. Hefði getað alveg bakkað og svo út hinu megin en ég var með magakrampa dauðans sem var að gera mig brjálað og ég var jú pínu pirruð á því að hún þurfti endilega að vera föst þarna. Þannig ég fór út úr bílnum og ætlaði bara að ýta henni, og ég í háhæluðu skónum byrja að ýta og hún að bakka... það gekk ekki alveg þannig ég hringdi í liðsauka og þá kom Dagmar niður og við byrjum að ýta og ýta. En ekkert gerist bíllinn spólar ekki einu sinni er bara pikkfastur ! Þannig þá kem ég með hugmynd með hvað að hringja í lögguna og biðja hana um smá hjálp en nei þær bara sjá ekki um svoleiðis verk....
Þannig að við höldum bara áfram að ýta og bakka, ýta og bakka, svo er einhver strákur úti og konan kallar á hann og hann kemur og hjálpar okkur að ýta og ég undir stýri að bakka, og við þennan liðsauka þá losnar bíllinn. :)
Svo fóru allir happý heim til sín, ég var ánægð þó að magakrampinn sagði til sín.
Þetta var semsagt góðverk dagsins í gær.

Hvað get ég sagt fleira... já ég fékk 7,5 í spænsku prófi, það var bara geggjað !
Svo er AIESEC ráðstefna í kvöld og stendur til sunnudag. Svo er nýsköpunar hópavinnan á fullu. Þurfum að kynna hugmyndina okkar 29. febrúar.
Sótti um hjá 10-11 2x í viku.. en ég sé fram á það að ég verði eiginlega að draga umsókn mína til baka út af skólanum. En er að fara byrja líka í stjórnunar-hópavinnu. Eigum að skila einhverja þvílika ritgerð og við þurfum að finna nýjan hópmeðlim þar sem einn sem var með okkur hætti í áfanganum.
Og svo eru miðannarprófin að renna upp 18 febrúar og 21. febrúar og svo kannski líka 27. febrúar.
Þarf að fara taka til í herberginu mínu, it's kinda dusty...
Pæling hvort maður eigi að taka til í herberginu í kvöld eftir ráðstefnuna eða gera eitthvað annað....

En ætla ekki að hafa þetta lengra, this is enough...
ciao