Ég þarf að hitta mömmu og Juno á eftir og svo halda kynningu ásamt hópnum mínum. Það slæma við það allt saman er að ég vaknaði með bullandi hausverk og stíflað nef og ógeðslega hálsbólgu. Já ég er veik.... :(
Á laugardaginn þarf ég að vinna og á sunnudaginn þarf ég að hitta annan hóp í verkefnavinnu.
Svo þarf ég að fara undirbúa mig undir prófin sem eru að fara bresta á en fyrsta prófið mitt er 7 apríl og síðasta 19. apríl.
Hlakka til að komast í páskafrí en samt ekki því fríið er bara í 6 daga... en samt þetta er þó frí...eða þannig held að ég verði bara látin í að mála og læra...
En þennan febrúarmánuð þá fór ég í smá klippingu og lét setja eina rauða strípu. Klippingin var gegg töff í fyrstu en eftir á þá var hún ekki eins töff því að ég kann ekki að blása og greiða það eins og Nonni gerði.
Juno klessti bílinn minn á ljósastaur, þeir sluppu vel sem betur fer... og loksins var hringt í pabba og kallarnir ætla að taka bílinn inn 10. mars. vúhú !!!
Ég held að það séu flestir sem eru orðnir svo þreyttir á snjóinu og hálkunni og öllu vetrarthinginu... nema Kristín...
Í gær þegar ég var að chatta við Ásrúnu á msn þá komst ég að því merkilegu að flestir kk Akureyringar væru með BP. Good to know ;)
1 ummæli:
hehehe, já þetta er svona things you must know, veist núna að það er örugglega hægt að skemmta sér vel á Akureyri :P
Annars er ég sammála þér með snjóinn...I'm bloddy sick of it.. það rignir nú núna sem er yndislega frábærlega frábært en ´skilst að það eigi að snjóa bara bráðlega aftur ;/
Skrifa ummæli