Svo er búið að snjóa like I don't know what.... margir fastir hér og þar, árekstrar hér og þar líka og svo má lengi telja. Talandi um að vera fastur í þessum hel*ítis snjó þá í gær gerðu við Dagmar góðverk og hjálpuðum konu einni sem festist við að leggja í stæði. Málið var þannig að ég skutlaði Dagmar heim til sín og svo þegar ég ætlaði heim til mín þá er bíll fyrir mér á bílastæðinu þannig ég kemst ekki áfram. Hefði getað alveg bakkað og svo út hinu megin en ég var með magakrampa dauðans sem var að gera mig brjálað og ég var jú pínu pirruð á því að hún þurfti endilega að vera föst þarna. Þannig ég fór út úr bílnum og ætlaði bara að ýta henni, og ég í háhæluðu skónum byrja að ýta og hún að bakka... það gekk ekki alveg þannig ég hringdi í liðsauka og þá kom Dagmar niður og við byrjum að ýta og ýta. En ekkert gerist bíllinn spólar ekki einu sinni er bara pikkfastur ! Þannig þá kem ég með hugmynd með hvað að hringja í lögguna og biðja hana um smá hjálp en nei þær bara sjá ekki um svoleiðis verk....Þannig að við höldum bara áfram að ýta og bakka, ýta og bakka, svo er einhver strákur úti og konan kallar á hann og hann kemur og hjálpar okkur að ýta og ég undir stýri að bakka, og við þennan liðsauka þá losnar bíllinn. :)
Svo fóru allir happý heim til sín, ég var ánægð þó að magakrampinn sagði til sín.
Þetta var semsagt góðverk dagsins í gær.
Hvað get ég sagt fleira... já ég fékk 7,5 í spænsku prófi, það var bara geggjað !

Svo er AIESEC ráðstefna í kvöld og stendur til sunnudag. Svo er nýsköpunar hópavinnan á fullu. Þurfum að kynna hugmyndina okkar 29. febrúar.
Sótti um hjá 10-11 2x í viku.. en ég sé fram á það að ég verði eiginlega að draga umsókn mína til baka út af skólanum. En er að fara byrja líka í stjórnunar-hópavinnu. Eigum að skila einhverja þvílika ritgerð og við þurfum að finna nýjan hópmeðlim þar sem einn sem var með okkur hætti í áfanganum.
Og svo eru miðannarprófin að renna upp 18 febrúar og 21. febrúar og svo kannski líka 27. febrúar.
Þarf að fara taka til í herberginu mínu, it's kinda dusty...
Pæling hvort maður eigi að taka til í herberginu í kvöld eftir ráðstefnuna eða gera eitthvað annað....
En ætla ekki að hafa þetta lengra, this is enough...
ciao
2 ummæli:
Woo!! Go við í hjálpinni =D djöfull erum við duglegar =Þ
Og til hamingju með spænsku prófið!!!
Og gangi þér vel í hinum prófunum =Þ
Já það er aldeilis nóg að gera og jahá ég er alveg sammála þér með það hvað tíminn líður hratt.
Frábært þetta góðverk sem þið unnuð, þá veit maður í hvern á að hringa skyldi maður festast :P
og bara til hamingju með spænsku prófið, ekkert smá flottur árangur ^^
Skrifa ummæli