föstudagur, 6. júní 2008

Plön, súludans og fiskar




Það er kominn meira en mánuður síðan ég bloggaði síðast :), ég held að það sé alveg nóg að blogga einu sinni á mánuði. Ég er ekki mikið fyrir að skilja komment á öðrum bloggum sem ég les því að ég hitti hvort sem er fólkið sem bloggar og mér finnst nóg að vera segja það face to face heldur en að vera skrifa eitthvað á blogginu þeirra og svo tala um bloggið þeirra þegar maður hittir þau :/

Sumir eru kannski ekki að fatta þetta alveg eða eru ekki sammála þessu but who cares.. not me...

Ég er byrjuð í sumarskóla og núna eru bara 2 vikur eftir af honum. Kennarinn er skemmtilegur og ég komst að því í gær að það er gaur sem var í Ædolinu og var kallaður 500-kallinn, er með mér í bekk. (NEI Björk ég ætla ekki að biðja hann um eiginhandaráritun !).

Dagmar átti afmæli 4. júní, orðin tvítug stelpan, til hamingju með daginn :)
Ég hlakka smá til þegar ég verð orðin 20 ára, en samt ekki :( hef ákveðið að halda ekki uppá afmælinu mínu, veit samt að mamma á eftir gera eitthvað. En ég ætla sjálf ekki að halda einhverja veislu og bjóða vinum og svoleiðis.

Þegar ég kom frá BGN og heim til RVK þá fattaði ég það þegar ég var að fara gefa fiskunum mínum mat að það voru bara 4 fiskar í búrinu. En það eiga að vera 6 fiskar (2 gubbý Steve & Greg, 4 neon fiskar Marvin, Leila, Luke og Finnbogi). Who stole my fishes? :/

Loksins náði ég að uppfylla langþráðan draum og það er að æfa súludans :)


Lenti svo um daginn þegar ég var að kíkja á myndir á Laugarásvideo að það labbar gaur upp að mér og byrjaði að reyna við mig. Svo þegar ég færði mig á næsta hillu þá var hann alltaf kominn á eftir mér. Meina þetta var ekki svo slæmt, en eftir smá tíma var mér farið að líða pínu óþægilega. Sérstaklega þegar hann bauð mér íbúðina sína svo að ég gæti horft á dvd myndir og hækkað í botn græjurnar og svoleiðis. :/ Svo var hann alltaf að tala um hvað við værum með sama bíómyndasmekkinn... að hann væri mjög mikið í grín og stríðsmyndum... ég fíla ekki stríðsmyndir....

Mér leiðist pínu og er einmanna og þegar það gerist þá.... (hehe ekki það sem þið pervertin eruð að hugsa um).. en ég fer að plana alltof mikið. Er komin með 5 ára plan !
Það er ekki gott, og núna þarf ég að gera annan 5 ára plan sem er miðað við hluti sem gætu gerst á þessum 5 árum.
Semsagt er basically komin með er að ég stefni á að útskrifast 2010. Ef Juno verður fluttur í bæinn og fasteignamarkaðurinn hefur lækkað þá vonandi kaupum við okkur íbúð. En á meðan mun ég sækja um í skólum í Bandaríkjunum og á Englandi þar sem ég stefni á framhaldsnám. Ef ég kemst inn þá flyt ég auðvitað. En mun samt hjálpa Juno með íbúðina, þ.e.a.s. ef við kaupum okkur en held samt að það gerist ekki. En þá er þetta miðað við að ég kynnist ekki einhverjum and get knocked up... úff... of mikið planning...

Me need knús :(

1 ummæli:

Ásrún sagði...

KNÚÚÚÚÚÚÚÚÚÚÚS

og annað minna til vonar og vara *knús*

oh and btw you think too much, hehe.
held að það sé ekki hollt að plana alltof mikið mín kæra.. allt er gott í hófi ;)

En já þó svo að þú viljir ekki halda upp á þitt ammli þá ert þú skildug til að mæta í mitt b'day bash and you know it ^^