Hann bakar meðan hann hlustar á held ég Cascada ... ég held að það sé í gangi núna.
En já, hér er ég komin til að vera, vona ég allavega. Ákvað að gera eins og hinir og stofnaði nýtt blogg á blogspot.com, pretty cool..
Þannig að hér ætla ég að tjá mig um það sem ég ætla að gera og mun gera og stöff.. svona basic normal blogg... svo allir geti lesið sig til um það sem ég er að gera ;)
Núna þessa stundina er ég komin í "jólafrí" frá skólanum, en er að nota tímann til að vinna mér inn smá monní, vinn hjá veitingaþjónustu frá 8 - 15:30 og svo í pósthúsinu frá 16 - 23.
En 75 % af þessum peningum fer beint í jólagjafa- og útskriftarkaup.
Talandi um útskriftarkaup þá er ég búin að kaupa útskriftargjafir handa Ásrúnu og Dagmar ^^
en þær eru nú að útskrifast nú á föstudaginn - laugardaginn...
Svo er ég búin að fá að vita einkunnirnar mínar úr aðferðafræði og spænsku náði þeim... ;)
Nú þar sem þessi 1. önnin er búin hjá mér þá veit ég allavega hvað ég þarf að gera til að ná þeirri næstu og þarnæstu annir þar til ég útskrifast :)
Held að ég sé komin með taktinn í þessu, tók smá tíma.. þetta er aðeins öðruvísi heldur en að vera í framhaldsskóla.
OMFG ég elska þarna lagið "The wiggle wiggle song" sem Haffi Haff tók á laugardaginn í þarna þáttinn á ruv... mergjaðslega cool !!! ^^
Set það hér :
Annars þá bara Gleðileg jól !! ^^
2 ummæli:
hehehe...mergjaðislega cool... *híhí*
Æðislegt, og gaman að sjá að þú ert loksins komin með almennilegan bloggstað til að halda úti almennilegu bloggi, hehe
hlakka klikkaðslega mikið til að hitta þig á föstudaginn en þá er ég að útskrifast!!!
Skrifa ummæli