Þessi dagur verulegar sökkar, jólastressið farið að segja til sín hjá mér.
úff veit ekki hvar og hvernig ég á að byrja....
dagurinn byrjar vel, vakna vel allt í goodí... svo þegar ég er að taka til hjá mér þá kemur ákveðinn aðili í heimsókn til að skiptast á hlutum, ekkert mál með það.
Óska honum gleðilegrar jóla.
Svo fer ég í pósthúsið að senda bréf, er pínu annars hugar borga fyrir bréfið og svo tek ég það og ætla að labba út með það....
Síðan þegar ég kemst loksins út þá fer ég til Dagmarar og ætla að rétta henni gjafirnar en þá var enginn heima, ætla svo að kíkja á Serrano til að gá hvort Þórhildur væri að vinna til að rétta henni gjafirnar og fá mér svo að borða, er á Sæbrautinni held ég að sú braut heiti þegar bílinn fyrir framan mig stöðvast skyndilega og ég bremsa svo og allt í einu lendir Polo fyrir aftan mig... en bíllinn fyrir framan mig sleppur því að hann brunar svo áfram.
Það var stelpa nýkomin með próf sem klessir á mig, við biðum eftir pabba hennar. Ég hringi í bróður minn grátandi og skelli svo á hannar þar sem hann er að keyra pabba. Svo hringir pabbi í mig en ég vil ekki tala við hann. Mega drama á ferð...
Segi honum svo hvað hafði gerst og auðvitað koma spurningar sem hljóma: ,, er bíllinn ónýtur ?"og eitthvað bílatengt... því að það er ég sem hringi, þá hlýtur allt að vera í lagi með mig....
en svo þegar pabbi þessara stelpu kemur þá förum við í Sjóvá báðir bílarnir tryggðir þar og skilum inn skýrslu þar.
Fór heim, hékk í tölvu reyndi að læra eitthvað, en svimi og hausverkur að gera mig brjálaða. Sofnaði og núna er ég að horfa á þarna kokkaþáttinn með ítölsku gellunni.
Oh well... þarf að fara taka á móti hringinum þar sem spurt verður um bílinn.... án djóks.. búin að fá nokkur svoleiðis hringingar...
Meira blogg seinna...
1 ummæli:
æji elsku dúllan mín *knús*
Ég hafði ekki hugmynd um þetta, hvernig líður þér?
hlakka til að sjá þig á morgun og gefa þér almennilegt knús!
Skrifa ummæli