föstudagur, 28. desember 2007

"Say what you wanna do to me ..."

Ég er veik, ligg uppí rúm með kvef og hausverk sem kemur og fer, með hita meirasegja.. Svona er lífið, þetta mun ekki hindra mig í að fara í útskriftarveisluna hennar Ásrúnar.. hell no !

En já við tvær (Ásrún og ég semsagt) skruppum í bæinn í gær. Hélt í gær að það væri tími því að það kom allt í einu upp á stundaskránni að það væri tími hjá mér.. þannig að ég fór uppí skóla til að tjékka á þessu. En kennarinn hefur víst ruglast eitthvað :/
Þannig ég og Ásrún fórum bara í bíó á myndina I am legend með honum Will Smith.. sem var bara góð mynd. Fannst mér. 
Svo fengum við okkur að borða hjá Svöfu þar sem hún var að halda jólaboð og þegar við vorum mættar á staðnum þá var jólasveinn að segja sögur og gefa krökkunum gjafir. 
Mér er farið að finnst jólasveinar vera frekar krípi gaurar... 

Og svo ákváðum við að skella okkur á næstu mynd í bíó, Enchanted. Hún byrjaði vel, en þegar við vorum hálfnaðar með myndina þá verður allt rafmagnslaust. Fólk fer að taka upp símanna sína og einn sem tók sig til  og gerði skuggamyndir. 
Eftir einhvern tíma þá kemur strákur og lætur alla vita að það hefur hellst á sýningarvélina og hún bara ónýt, en í staðinn eigum við að fara upp og gefa upp nafn og kennitölu og við fáum gjafamiða á hvaða mynd að eigin vali næst þegar við förum í bíó... Þannig að þar með fórum við upp gáfum upp það sem þurfti og skelltum okkur bara heim í Borgó. 

Svona var dagurinn í gær... annars þá bara gleðileg jól og farsælt komandi ár :)


1 ummæli:

Ásrún sagði...

Ertu vissum að þú viljir að ég segi hér hvað ég vil gera við þig? híhí

En já þetta var náttla bara snilldar ferð í rvk.. og við erum hálfgerðir svona jólaboðs-crashers... förum í jólaboð, borðum og látum okkur hverfa, hehe